clearly the best way to store everything


Hér er að finna lista yfir öll glæru boxin okkar. Þú getur keypt þau með því að smella á KAUPA hnappinn við hverja vöru eða farið í vefverslunina.

Öll boxin eru send samanbrotin svo að lítið fer fyrir þeim en það er ekkert mál að setja þau saman.

Við sendum boxin strax af stað og þau ættu að berast þér heim að dyrum innan 3-4 virkra daga.


Skóbox
Svarið við draumum þeirra sem elska að kaupa sér skó. Boxin okkar gjörbreyta fataskápnum þínum og spara þér dýrmætar mínútur þegar þú þarf að finna akkúrat réttu skóna. Boxin opnast báðum megin og það er auðvelt að hlaða þeim upp, þú þarft ekki einu sinni að taka boxið fram til að ná í skóna. Eins og öll Clear box boxin hafa skóboxin handföng svo auðvelt er að halda á þeim. Fyrir skó upp að stærð 40.

KAUPA »

ladies' clear box

ladies' mixed pack .. Blönduð skóbox
Við bjóðum alltaf öðru hvoru upp á lituð skóbox sem lífga upp á fataherbergið eða hjálpa þér við að flokka skóna. Lituðu boxin eru líka frábær gjöf fyrir vinkonur sem hafa þörf á að koma röð og reglu á skóna í lífi sínu.

KAUPA »


Stór skóbox
Skósöfnun er ekki einkamál kvenna, við vitum að karlar vilja líka halda skónum sínum í röð og reglu og þess vegna bjóðum við upp á stærra skóbox. Þetta box hentar líka frábærlega fyrir fyrirferðamikla vetrarskó og svo auðvitað fyrir þær konur sem nota stærri stærðir. Stóra skóboxið er fyrir skó allt að stærð 45.

KAUPA »

men's clear box

mid-calf boot box Stutt stígvélabox
Kannastu við að vita ekki hvað þú átt að gera við öll stígvélin þín? Stuttu stígvélaboxin passa fullkomlega undir kálfa- og ökklaháu stígvélin þín. Ef þú notar líka Clear Box stígvélahólkana kemurðu í veg fyrir að stígvélin krumpist um ökklana.

KAUPA »


Stígvélabox
Það eina slæma við frábæru hnéháu stígvélin er að finna út hvað maður á að gera við þau þegar maður er ekki í þeim. Clear box stígvélaboxin leysa vandamálið, í þeim er nóg pláss til að geyma stígvélin ókrumpuð og ef þú notar líka Clear box stígvélahólkana haldast þau í sem bestu ástandi.

KAUPA »

knee-length boot box

boot support Stígvélahólkar
Stígvélahólkarnir eru einfaldir í notkun, þú einfaldlega rúllar þeim upp og stingur þeim niður í stígvélin, þar sem þeir þenjast út og halda stígvélunum þínum sléttum og krumpulausum. Hólkana má stytta fyrir stutt stígvél.

KAUPA »


Hattabox
Ef þú hefur uppgötvað gleðina sem fagrir hattar færa hefurðu örugglega líka komist að því að það getur verið erfitt að halda höttum í fullkomnu ástandi. Clear Box hattaboxin halda höttunum hreinum og ókrumpuðum og þú getur enn glaðst yfir fegurð þeirra, jafnvel uppi í hillu. Hattaboxin er auðvelt að setja saman og á þeim eru handföng líkt og öll hinum boxunum. Hattaboxin koma í tveimur stærðum.

KAUPA »

hat box

storage box Geymslubox
Geymsluboxin hjálpa þér við að koma reiðu á lífið, hvort sem þú þarf að koma skikki á fataskápinn eða geymsluna. Boxin eru frábær fyrir leikföng jafnt sem handtöskusafnið og þau koma í tveimur stærðum, Á hliðum boxana eru handföng til að færa boxin og á lokinu er einnig handfang til að lyfta lokinu.

KAUPA »


Okkur stendur ekki á sama
Polypropylene plastefnið skaðar ekki umhverfið þegar því er fargað. Það er endurvinnanlegt og uppfyllir öll fjögur ákvæði umhverfisráðs Evrópusambandsins.
Okkur stendur ekki á sama