
Um The Clear Box Company...
Dag einn árið 2000 þegar ég var að leita að skóm sem ég ætlaði að fara í innan um öll hin 299 pörin mín, þá hugsaði ég: “Ef ég bara gæti séð í gegnum alla kassana!”. Þannig fæddist hugmyndin að glæru Clear Box öskjunum og ég vissi strax að það væru milljónir manna og kvenna sem ættu við sama “vandamál” að stríða.
Ég hafði í mörg ár starfað í skógeiranum, sem umboðsmaður fyrir spænskan skóframleiðanda, og þótt ég hafi vissulega erft skófíknina frá móður minni (sem var alvöru Imelda), þá hjálpaði það ekki að hafa aðgang að sýnishornunum í verksmiðjunni, hvílíkur Alladínshellir! Einhvern veginn yrði ég að leysa vandamálið.
The Clear Box öskjurnar hafa verið á markaði frá því í september 2001 og fyrirtækið hefur ekki alltaf siglt lygnan sjó en ég hef aldrei misst sjónar á stóru myndinni og árið 2005 sáum við drauma okkar byrja að rætast. Engum þeirra sem hafa gert eftirlíkingar af öskjunum okkar hefur tekist að framleiða box af jafnmiklum gæðum og okkar og ég lít á eftirlíkingarnar sem hrós.
Við vorum fyrst á markað og við erum enn best. Ekki einungis framleiðum við öskjur í gæðum sem við teljum þau bestu á markaðinum heldur státum við okkur af því að veita okkar bestu þjónustu, sem við teljum því miður ekki of algengt á þessum tímum, og við reynum að veita persónulega þjónustu. Ég veit hversu miklu máli skórnir þínir skipta þig!
Nú höfum við frábæra dreifingaraðila í þónokkrum löndum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa einnig séð stóru myndina þegar þeir sáu okkur í Vogue, Elle, Tatler eða einhverju öðru blaði, og vildu samstundis verða hluti af The Clear Box Company. Þú hefur séð hvar þeir eru þegar þú skoðaðir heimskortið á vefnum okkar – ég tek ofan fyrir samverkafólki mínu sem deilir með mér draumum og ást á skóm.
Bestu kveðjur til allra okkar viðskiptavina.
|